Múslíið sem ég bý mér alltaf til er með hnetusmjörsbragði, líkt og flest allt annað hjá mér. Ég stóð mig náttúrulega að verki við að slumpa og nota nánast engin mæliáhöld þannig að það er ýmist dl eða bollar í mælieiningu hjá mér. uppskriftin er samt í grófum dráttum svona (give or take):
Múslí:
1 dl akasíu hunang
2-3 dl hnetusmjör (eftir hnetusmjörsást)
1-2 bolli vatn
4-5 bollar tröllhafrar
1 dl fimm korna blanda
2 bollar döðlur
1 dl trönuber
1/2 tsk kanill
sjóðið vatn, hnetusmjör og hunang saman í stórum potti. Athugið að hnetusmjörið þarf sýna þolinmæði og þá sérstaklega ef það er sollu hnetusmjör, það er lengi að bráðna. Bætið við vatni ef þetta er of þykkt
saxið döðlurnar (ég vill hafa þær mjög fínar)
bætið höfrum, kornum,döðlum og trönuberjum út í, bætið við þurrefnum ef þetta er of blautt því þetta má alls ekki verða blautt því þá verður það ekki krispí.
setjið á bökunarplötu og dreifið úr, stráið kanil yfir
Góð gjöf
best út á ab mjólk!