mánudagur, 3. júní 2013

Heimagert múslí.

Í kvöld dúllaði ég mér við það að búa til múslí. Ég hef aldrei fundið mér múslí út í búð sem er bæði hollt og gott. Annað hvort er það svo hollt að það er bragðlaust eða svo sykrað að það er óhollt.
Múslíið sem ég bý mér alltaf til er með hnetusmjörsbragði, líkt og flest allt annað hjá mér. Ég stóð mig náttúrulega að verki við að slumpa og nota nánast engin mæliáhöld þannig að það er ýmist dl eða bollar í mælieiningu hjá mér. uppskriftin er samt í grófum dráttum svona (give or take):

Múslí:
1 dl akasíu hunang
2-3 dl hnetusmjör (eftir hnetusmjörsást)
1-2 bolli vatn
4-5 bollar tröllhafrar
1 dl fimm korna blanda
2 bollar döðlur
1 dl trönuber
1/2 tsk kanill


















sjóðið vatn, hnetusmjör og hunang saman í stórum potti. Athugið að hnetusmjörið þarf sýna þolinmæði og þá sérstaklega ef það er sollu hnetusmjör, það er lengi að bráðna. Bætið við vatni ef þetta er of þykkt


















saxið döðlurnar (ég vill hafa þær mjög fínar)

















bætið höfrum, kornum,döðlum og trönuberjum út í, bætið við þurrefnum ef þetta er of blautt því þetta má alls ekki verða blautt því þá verður það ekki krispí.


















setjið á bökunarplötu og dreifið úr, stráið kanil yfir



















Góð gjöf


















best út á ab mjólk!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli